Greinasafn eftir: admin

Velkomin á vefsíðu Mannræktar og menntunar ehf.

Mannrækt og menntun ehf. var stofnað 09.09.2009, af Valgerðir Snæland Jónsdóttur, fyrrverandi (fyrsta) skólastjóra Smáraskóla í Kópavogi 1994 – 2010 og Sérkennslufulltrúa á Fræðsluskrifstofu Reykjanesumdæmis 1980 – 1994 – í þeim tilgangi að kynna kenningar Ron D. Davis um náðargáfu dyslexíunnar „The GIft of Dyslexia“. Um er að ræða fræðslu- og mannræktarsetur þar sem m.a. er boðið upp á Davis námskeið til að leiðrétta dyslexíu (lestur), dyscalculiu (stærðfræði), dysgraphiu (skrift og ritun), dyspraxiu (skipulags- og verkstjórn), ADHD/ADD og einhverfu.
Einnig er unnið með kenningar klíníska sálfræðingsins dr. Roger Callahan sem þróaði TFT – Thought Field Therapy en hans einkunnarorð voru: „Það er engin þörf að þjást.“
Annað sem boðið er upp á er: dáleiðsla. heilsumarkþjálfun að hætti Institute for Integrative Nutrition (IIN heilsumarkþjálfun)