Um Mannrækt og menntun ehf

Eigandi Mannræktar og menntunar ehf. er: Valgerður Snæland Jónsdóttir, M.Phil. frá University of Northumbria í Newcastle, fyrrverandi skólastjóri við Smáraskóla (1994-2010), fyrrverandi sérkennslufulltrúi á Fræðsluskrifstofu Reykjanesumdæmis 1980 – 1994, fyrrverandi kennari við Digranesskóla, Kársnesskóla, Vanvitaskóla Kópavogs og Skóla Upptökuheimilis ríkisins. Valgerður hefur kennt námskeið Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins Aftur í nám frá 2009 á nokkrum símenntunarstöðvum í landinu og á vegum Mannræktar og menntunar ehf. á höfuðborgarsvæðinu. Valgerður hefur starfað sem alþjóðlegur Davis ráðgjafi frá 2003 eða í 22 ár.

Menntun: Löggiltur grunn- og framhaldsskólakennari, frá KHÍ, Löggiltur náms- og starfsráðgjafi frá Háskóla Íslands, BA í sérkennslufræðum frá KHÍ, Alþjóðlegur Davis ráðgjafi, Alþjóðlegur Gottman foreldra- og fjölskylduráðgjafi, Alþjóðlegur Heal Your Lif kennari, IIN heilsumarkþjálfi frá Institute for Integrative Nutrition í New York, NLP-master markþjálfi, Alþjóðllegur Reconnective Healing fræðari, Dáleiðslufræðingur, EFT-fræðari, TFT-fræðari.